![Lífland hefur tekið í sölu nýjan íslenskan saltstein frá Kalksalti á Flateyri.]()
Lífland hefur tekið í sölu nýjan íslenskan saltstein frá Kalksalti á Flateyri.
Steinninn sem heitir Kalksaltsteinn hefur þá sérstöðu að vera samsettur úr endurnýttu salti frá fiskverkun og hafkalki frá Bíldudal auk viðbætts A, D og E-vítamíns og selens. Í steininum er einnig melassi sem bindur saman efnið og eykur lystugleika.